Mánudagur, 20. maí 2013
 
TölublöðVenjuleg útgáfa

Hlutabréf í Facebook halda áfram að hrynja í verði

31. ágúst 2012 kl. 18:50

Ekki er víst að Mark Zuckerberg stofnandi og forstjóri Facebook brosi jafn blítt og á myndinni, eftir daginn í dag.

Hlutur í samskiptasíðunni hefur lækkað um 52% frá skráningu hennar í kauphöllina í New York.

Hlutabréf í samskiptasíðunni Facebook hafa lækkað mikið í það sem af er degi á Wall Street. Nemur lækkunin 5,18% og standa hlutabréf félagsins í 18,1 dal á hlut.

Lækkunin er í kjölfar þess að bankarnir Bank of America-Merrill Lynch og Bank of Montreal lækkuðu verðmöt sín á fyrirtækinu, en báðir bankarnir skrifuðu undir útboðslýsingu þess. Þrátt fyrir það eru verðmötin mun hærri en núverandi gengi fyrirtækisins, eða á bilinu 23-25 dalir á hlut.

Hlutabréf Facebook hafa því lækkað um 52% frá því félagið var sett á markað í maí.



Allt
Innlent
Erlent
Fólk