Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því að Vestmannaey VE 444 landaði sínum fyrsta farmi í Vestmannaeyjum. Afli Vestmannaeyjar á þessum 10 árum er rúmlega 33.000 tonn og aflaverðmætið rúmlega 8,5 milljarðar króna, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Eigandi skipsins er útgerðarfélagið Bergur-Huginn ehf. sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar hf. Vestmannaey var smíðuð í Póllandi árið 2007 og er svonefndur þriggja mílna bátur, 291 tonn að stærð og 29 metrar að lengd. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE 544, kom síðan nýtt til landsins í ágústmánuði sama ár. Bæði Vestmannaey og Bergey hafa reynst mikil happaskip og alla tíð aflað einstaklega vel.

Skipstjóri frá upphafi hefur verið Birgir Þór Sverrisson. Heimasíða SVN sló á þráðinn um borð og ræddi við Birgi þar sem skipið var á ýsuveiðum á Síðugrunni. „Já, við erum að eltast við ýsu núna og það hefur gengið ágætlega. Annars hafa aflabrögðin verið ævintýralega góð frá því að verkfallinu lauk. Hjá okkur hafa veiðiferðirnar gjarnan verið einn og hálfur til tveir sólarhringar og sá tími hefur dugað okkur til að fá 60-90 tonn. Við höfum komið með fullan bát aftur og aftur. Hjá okkur er aflinn blandaður, en oft er uppistaðan þorskur. Það virðist vera nóg af fiski og vertíðarþorskurinn gekk á sín helstu svæði fyrr en oftast áður. Frá verkfalli höfum við fiskað tæplega 900 tonn og aflaverðmætið er um 175 milljónir króna. Þetta hefur verið veisla,“ sagði Birgir. Sjá nánar á vef Síldarvinnslunnar .