Heldur færri leigusamningum var þinglýst á landinu í janúar heldur en í sama mánuði í fyrra. Í mánuðinum nam heildarfjöldi þeirra 850 en á síðasta ári voru þeir 1068 talsins. Fækkar þeim því um 20,4% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár Íslands .

Á höfuðborgarsvæðinu var 583 leigusamningum þinglýst. Það er 17,1% fækkun frá fyrra ári þegar 703 samningum var þinglýst.