Í júnímánuði beindist leit Íslendinga að ferðum í gegnum Dohop í flestum tilfellum að ferðum á Evrópumeistaramótið í Frakklandi.
Í kjölfar þess að EM er lokið beinist leit Íslendinga á vef Dohop að ferðum til Spánar, sem er í takt við venjur undanfarin ár, en áfangastaðurinn virðist halda vinsældum sínum fyrir sumarleyfaferðir landans.
Nú er hins vegar hægt að fá ferð til Parísar allt niður í 18.733 krónur, en þeir sem greiddu mest fyrir dagsferð til að komast á leik í Frakklandi greiddu tífalt þetta verð.