Af lóðaúthlutunum fyrir 1.711 íbúðir í Reykjavík á síðasta ári var mikill meirihluti úthlutað í félagslegum tilgangi. Alls voru samþykktar lóðaúthlutanir fyrir 1.711 íbúðir í borgarráði á síðasta ári. Mikill meirihluti úthlutaðra lóða var fyrir byggingarfélög sem starfa án hagnaðarsjónarmiða að því er segir í fréttatilkynningu.

Úthlutað var lóðum fyrir 1.711 íbúðir í borgarráði í fyrra. Rúmlega 83% þeirra, eða 1.422 íbúðir, var úthlutað til félaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni en þar eru íbúðir fyrir stúdenta, eldri borgara og lágtekjufólk í meirihluta. Eins er forvitnilegt að meirihluti lóðanna er ekki á hefðbundnum þéttingarreitum í Miðborginni en uppbygging á þeim öllum mun hins vegar þétta byggð.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri segir það hittast skemmtilega á að 1.711 íbúðir sé nákvæmlega heildarfjöldi íbúða á öllu Seltjarnarnesi „Það er líka mjög mikilvægt að hafist verði handa við þær 1.422 íbúðir sem byggjast munu á lóðum sem úthlutað var til félaga sem ekki starfa í hagnaðarskyni,“ segir Dagur sem heldur því fram að um sé að ræða metár í lóðaúthlutunum.

„Verkefni á vegum þeirra hafa verið áberandi hluti af húsnæðisáætlun borgarinnar enda leika þau lykilhlutverk við að útvega húsnæði á viðráðanlegu verði. Lóðaúthlutanir til þeirra munu því sannarlega halda áfram á þessu ári, en nokkur vilyrði um það liggja þegar fyrir.“

Félagsstofnun Stúdenta fékk stærsta hlutann

Stærstu úthlutanirnar árið 2017 voru til Félagsstofnunar Stúdenta sem er þegar byrjað að byggja 244 íbúðir við Sæmundargötu í Vatnsmýri, Háskólans í Reykjavík sem mun byggja 370 íbúðir við Nauthólsveg, Bjargs íbúðafélags í eigu verkalýðshreyfingarinnar sem mun byggja 156 íbúðir við Móaveg í Grafarvogi og um 80 íbúðir á tveimur lóðum í Úlfarsárdal, Sjómannadagsráðs sem mun byggja 144 íbúðir við Sléttuveg í Fossvogi og til félagsins Vesturbugtar sem byggir 176 íbúðir við Vesturbugt við gömlu höfnina.

Þá er Búseti að hefja byggingu á 78 íbúðum á lóðinni við Keilugranda 1 þar sem SÍF skemman stóð. Listinn er settur fram af skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar sem heldur utan um lóðaúthlutanir Reykjavíkurborgar.