Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,6% og er 7.978 stig við hádegi, en í gær lækkaði hún um 2,82%, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur 2,6 milljörðum króna.

Atlantic Petroleum hækkaði um 6,66%, Nýherji hækkaði um 2,38%, Teymi hækkaði um 1,99%, TM hækkaði um 1,81% og Icelandic Group hækkaði um 1,36%.

Eik banki lækkaði um 1,18%, Össur lækkaði um 0,49%, Icelandair Group lækkaði um 0,38% og Bakkavör Group lækkaði um 0,31%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,4% og er 121,6 stig.