Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,25% og er 7.944 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Metnis. Veltan nemur 3,2 milljörðum króna.

Exista hefur hækkað um 3,3%, Eimskip hefur hækkað um 2,44%, FL Group hefur hækkað um 1,46%, Kaupþing hefur hækkað um 1,31% og Glitnir hefur hækkað um 1,06%.

Össur hefur lækkað um 0,3%.

Gengi krónu hefur veikst um 0,24% og er 117,7 stig.