Peter t. Ørebech prófessor í lögfræði við Háskólann í Tromsø í Noregi er einn þeirra sem munu flytja erindi á opnum fundi í Háskóla íslands um aukið vald Evrópusambandsins í orkumálum hér á landi.

Segir hann ályktanir Birgis Tjörva Péturssonar í greinargerð fyrir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem birtust í september ekki standast að því er Morgunblaðið segir frá. Þar segir Örebech að eignarréttarákvæði um orkuauðlindir verði ekki undanskilin fjórfrelsinu og reglum innri markaðar um að ekki megi gera upp á milli fyrirtækja innan þess.

Birgir Tjörvi segir hins vegar að 125. grein EES samningsins um að ESB reglur hafi ekki áhrif á reglur um eignarrétt hér, en Ørebech bendir á að Evrópudómstóllinn geti og hafi sýnt það að orkumál séu ekki undanþegin.

Álit prófessorsins er þvert á álit sendiherra ESB á Íslandi en Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um orkupakkann. Skoðanakannanir sýna mikla andstöðu Íslendinga við upptöku pakkans en annar ræðumaður á fundinum segir mikla hagsmuni í húfi , en Bjarni Benediktsson hefur einnig gagnrýnt framkomu ESB í málinu.

Rangt að reglurnar gildi ekki fyrr en við lagningu sæstrengs

Jafnframt gagnrýnir Ørebech þá fullyrðingu Birgis Tjörva að svo lengi sem íslenski markaðurinn sé ekki tengdur þeim evrópska með sæstreng gildi takmarkanir á viðskipti með raforku sem eru í EES samningnum.

Segir Ørebech þá niðurstöðu ranga, reglur um bann við slíkum takmörkunum taki þegar gildi við innleiðingu þriðja orkumálapakkans hér á landi og jafnframt geti Ísland ekki bannað einkaaðila að leggja sæstreng.

Því ef ágreiningur kæmi upp um lagningu sæstrengs, yrði það í höndum ACER, orkustofnunar ESB að úrskurða um það hvort leggja mætti sæstrenginn, ekki íslenskra stjórnvalda.

Heimsýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum heldur fundinn sem verður klukkan 17:15 í stofu HT-102 á Háskólatorgi Háskóla Íslands í dag. Aðrir ræðumenn verða Vigdís Hauksdóttir lögfræðingur og borgarfulltrúi og Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur.