Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,31% í dag en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu tæplega 1,2 milljarði króna. Aðalvísitala skuldabréfa lækkaði einnig um 0,07% og stendur því í 1.364,26 stigum, en viðskipti með skuldabréf námu tæplega 7,9 milljörðum króna.

Aðeins tvö félög hækkuðu í kauphöllinni í dag. Síminn hækkaði um 0,84% en viðskipti með bréf félagsins námu tæplega 302 milljónum króna. Við lokun markaða stóðu bréf fjarskiptafélagsins í 4,21 krónu. Þá hækkuðu bréf Skeljungs um 0,60% og stóðu í 6,73 krónum við lokun markaða. Viðskipti með bréf Skeljungs voru þó öllu minni en þau námu tæplega 37 milljónum króna.

Mest lækkun var á bréfum Nýherja en þau lækkuðu um 1,91% í tæpum 83 milljóna króna viðskiptum. Við lok dags stóðu bréf Nýherja í 25,70 krónum. Næst mest lækkuðu bréf haga eða um 1,37% í viðskiptum upp á tæplega 124 milljónir króna og standa þau því í 35,90 krónum. en þau lækkuðu um 1,47 % í 170 milljón króna viðskiptum og stóðu í 6,69 krónum við lokun markaða. Þá lækkuðu bréf Marel næst mest eða um 0,47% í 70 milljón króna viðskiptum og stóðu í 321,00 krónu við lokun markaða