Aðildarkort fyrir viðskiptavini Costco eru þegar farin að berast þeim sem skráð hafa sig í aðild að vöruhúsi Costco, nú tveim mánuðum áður en stefnt er að opnun þess í Kauptúni í Garðabæ.

Nú þegar hafa nokkur þúsund einstaklingar og fyrirtæki sótt um aðild að Costco, að því er segir í frétt mbl.is , en hún er nauðsynleg til að geta verslað hjá fyrirtækinu.

Kostar ársaðild fyrir einstaklinga 4.800 krónur en fyrirtækjaaðild kostr 3.800 fyrir árið. Jafnframt hefur fyrirtækið þegar ráðið 135 starfsmenn en um 800 umsóknir hafa komið fyrir þau 200 störf sem eru í boði.