„Rekstur Síldarvinnslunnar gekk ágætlega á síðasta ári. Veiðar og vinnsla gengu vel og var meira veitt á síðasta ári en árið áður þrátt fyrir verkfall fyrstu tvo mánuði ársins,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður á aðalfundi Síldarvinnslunnar síðasta miðvikudag.

„Þrátt fyrir meiri afla voru verðmæti minni en árið áður og sýnir það e.t.v. hversu hratt aðstæður geta breyst í sjávarútvegi og í raun í hversu síbreytilegu umhverfi við störfum. Fyrirtæki þurfa því að vera í stakk búin til að bregðast við slíkum breytingum.“

Hann sagði Síldarvinnsluna hafa gert það með því að nýta góð skilyrði undanfarinna ára til að fjárfesta í innviðum og framleiðslutækjum.

„Uppbygging landvinnslu undanfarin ár og fjárfestingar í uppsjávarskipum eru að skila sér. Á síðasta aðalfundi gáfum við út að ráðist yrði í endurnýjun bolfisktogaranna. Fyrstu skrefin hafa verið tekin með samkomulagi við VARD Aukra skipasmíðastöðina í Noregi um smíði tveggja 29 metra togara sem verða með heimahöfn í Vestmannaeyjum.“

Hann sagði Síldarvinnsluna hins vegar ekki hafa farið varhluta af breytingum í rekstrarumhverfinu frekar en önnur fyrirtæki í útflutningi. Erfitt sé að stjórna og hafa áhrif á breytingar á gengi íslensku krónunnar, hækkun sumra kostnaðarliða og sveiflur í afurðarverðum úti í heimi.

„Aftur á móti eru aðrar breytingar í umhverfi okkar sem við Íslendingar höfum stjórn á,“ sagði hann og nefndi þar fjögur dæmi.

Eitt er þróun kostnaðar við eftirlitsmenn um borð í frystiskipum. Árið 2015 hafi kostnaður við eftirlitsmann um borð í frystiskipi verið 30.000 kr. á dag en sé nú um 84.000 kr. á dag. Þetta er hækkun upp á 270% á tveimur árum.

„Annað dæmi eru veiðigjöldin. Á fyrstu fjórum mánuðum yfirstandandi fiskveiðiárs greiddi Síldarvinnslan 250 milljónir króna í veiðigjöld. Þetta eru þrjár og hálf milljón á hverjum virkum degi en ef horft er á Norðausturkjördæmi allt eru það 15 milljónir hvern virkan dag. Veiðigjöldin taka ekki mið af aðstæðum í umhverfi okkar í dag heldur þegar aðstæður voru allt aðrar og betri.“

Þriðja dæmið eru kolefnisgjöld.

„Síldarvinnslan greiddi 172 milljónir í kolefnisgjöld á síðasta ári. Til stendur að hækka gjaldið um 50%. Samkeppnisaðilar okkar í nágrannalöndunum og annars staðar í heiminum búa ekki við viðlíka skilyrði. Í raun er kolefnisgjaldið ekkert annað en skattur, enda er það greitt þó skipin séu að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði eða í lögsögum annarra ríkja.“

Fjórða dæmið eru stimpilgjöld.

„Þegar Beitir var keyptur þurfti að greiða yfir 80 milljónir króna í stimpilgjöld. Það þarf hins vegar engin slík gjöld að greiða af flugvél sem keypt er til landsins, ekki heldur af flutningaskipum íslenskra skipafélaga, sem eru reyndar öll skráð erlendis, eða af vinnuvélum eða virkjunum. Hér hafa fiskiskipin algera sérstöðu og öll önnur atvinnutæki eru undanþegin stimpilgjöldum.“

Hann nefndi síðan að fyrirtæki eins og Síldarvinnslan veiti mörgum atvinnu og skapi störf sem mörg hver eru vel launuð og eftirsótt. Þá kaupi Síldarvinnslan þjónustu af mörgum fyrirtækjum og hafi rutt brautina fyrir tæknifyrirtæki sem hafa þróað búnað fyrir sjávarútveginn, fyrst á Íslandi og sem síðan hefur orðið að útflutningsvöru með afar jákvæðum áhrifum.

„Margfeldisáhrif fyrirtækja eins og Síldarvinnslunnar eru ótvíræð,“ sagði Þorsteinn Már í aðalfundarræðu sinni.

„Þrátt fyrir þetta verður að viðurkennast að sátt um greinina er vart til staðar þó hún sé skattlögð langt umfram aðrar atvinnugreinar. Þá ber að hafa í huga að íslenskur sjávarútvegur er í samkeppni við sjávarútveg annarra þjóða en erlendis finnst engin hliðstæða hvað álögur varðar. Vonandi fær íslenskur sjávarútvegur að dafna í framtíðinni og njóta sannmælis sem atvinnugrein.

Það er staðreynd að utan fjármálafyrirtækja og opinberra aðila eru fjögur sjávarútvegsfyrirtæki hæstu skattgreiðendur landsins ásamt Icelandair og Síldarvinnslan er í þeim hópi.“

Lesa má ræðu Þorsteins Más í heild á vef Síldarvinnslunnar.