Yfirvöld í Stokkhólmi hafa gert samning við Advania um kaup á snjalltækjum til allra grunn- og leikskóla borgarinnar. Virði samningsins er um 500 milljónir sænskra króna, sem samsvarar 6 milljörðum íslenskra króna. Í samningnum felst að Advania sér um að útvega og þjónusta 55 þúsund snjalltæki á ári, næstu tvö árin. Það samsvarar tvöfalt fleiri spjald- og fartölvum en seldar voru á Íslandi í fyrra.

„Um árabil hefur Advania í Svíþjóð hefur gegnt lykilhlutverki í stafrænni þróun á sænsku skólakerfi. Hér á Íslandi hefur Advania einnig sinnt þessu hlutverki með margvíslegum hætti. Við höfum staðið fyrir kennaranámskeiðum um upplýsingatækni og aðstoðað hina ýmsu skóla að tæknivæðast. Við sjáum fjölmörgum skólum fyrir tækjabúnaði og bjóðum öflug upplýsingakerfi fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Við erum stolt af því að taka markvissan þátt í að búa börn undir vinnumarkað framtíðarinnar sem verður í miklum mæli í stafrænum heimi.

Með nýjum samningi við borgaryfirvöld í Stokkhólmi er þjónusta við skólakerfið svo sannarlega orðin ein af grunnstoðum í rekstri Advania,“ er haft eftir Ægi Má Þórissyni, forstjóri Advania á Íslandi.