„Afkoma Eimskips á árinu 2018 var undir væntingum,“ segir Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í tilkynningu með uppgjöri félagsins. Nokkur tekjuaukning var á árinu og sömuleiðis var vöxtur í flutningsmiðlun félagsins „…en á móti kemur að minnkandi framlegð, hærri kostnaður og afskriftir draga afkomu niður á milli ári,“ segir Vilhelm.

Hagnaður dróst saman 56% milli ára og nam í fyrra rúmum einum milljarði króna á árinu samanborið við tæpa 2,3 milljarða króna á síðasta ári. EBITDA hagnaður var 6,7 milljarðar króna og lækkaði um rúman einn milljarð frá fyrra ári eða um tæp 14%. Rekstrartekjur voru 93,8 milljarðar og jukust um 3,8%. Rekstrargjöld námu 87 milljörðum og hækkuðu um 5,5% á milli ára. Afskriftir voru 4,4 milljarðar sem er 8% hækkun frá fyrra ári. Hrein fjármagnsgjöld drógust saman um 32% miðað við árið 2017 og voru 670 milljónir

Eignir jukust um 5,8% og námu rúmum 66 milljörðum króna í lok árs 2018. Skuldir hækkuðu um 15,1% milli ára og voru 33,7 milljarðar. Eigið fé lækkaði samhliða um 2,3% í 32,5 milljarða króna.

Tap var rekstri félagsins á fjórða ársfjórðungi síðasta árs upp á tæpar 260 milljónir. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,3 milljarður króna en afskriftir námu 1,2 milljarði og fjármagnsgjöld 215 milljónir króna. Þrátt fyrir að tekjur hafi aukist um 1,7% á fjórðunginum segir Vilhelm í tilkynningu að tapið sé að hluta til vegna óreglulegra liða. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var neikvæð á fjórðunginum um 77 milljón króna.

„Samdráttur í  rekstrarniðurstöðu á milli ára skýrist af nokkrum megin þáttum umfram aðra. Í grunninn gengur siglingastarfsemin til og frá Íslandi og Færeyjum, ásamt annarri starfsemi í þessum löndum, vel en rekstrarafkoma í frystiflutningum í Noregi var langt undir væntingum og eins átti hluti af flutningsmiðlun í Evrópu undir högg að sækja á árinu, sérstaklega framan af ári. Starfsemin í Noregi hefur fengið sérstaka athygli og t.a.m. verið fækkað um tvö skip í rekstri, það síðara nú í janúar.  Lengri tíma tók að byggja upp magn fyrir þriðja skipið á Norður-Ameríku leið félagsins en áætlað var sem hafði áhrif á afkomu ársins en á síðustu mánuðum hefur orðið jákvæð þróun í magni í Trans-Atlantic þjónustu. Óvissa í efnahagsmálum á Íslandi m.a. tengdum kjaraviðræðum höfðu einnig áhrif á síðasta fjórðung ársins en hægt hefur á vexti í innflutningi og samdráttur í ákveðnum vöruflokkum.

Töluverðar breytingar voru gerðar á skipulagi félagsins í upphafi árs 2019 sem eru til þess fallnar að skýra áherslur til muna, bæta reksturinn og auka arðsemina til lengri tíma litið. Siglingakerfi félagsins er endurskoðað með reglulegu millibili með tilliti til þróunar markaða, þarfa viðskiptavina og hagkvæmni. Áhersla er lögð á að samþætta vinnu og verkferla á milli eininga í allri starfsemi félagsins til að ná fram aukinni skilvirkni, m.a. með aukinni sjálfvirknivæðingu.

Eimskip stendur á ákveðnum tímamótum þegar horft er til reksturs og framtíðar. Seinni hluta árs 2019 gerum við ráð fyrir að taka á móti tveimur nýjum skipum, 2.150 gámaeiningar að stærð hvort um sig sem nú eru í smíðum í Kína og er fjárfesting í þeim hluti af væntanlegu samstarfi við Royal Arctic Line. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum ytri vexti og er það nú sameiginlegt verkefni þess öfluga og samhenta hóps sem hjá Eimskip starfar að byggja á þeim grunni, halda skýrri sýn, skerpa á áherslum í rekstri og hámarka árangur,“ segir Vilhelm Þorsteinsson.