Fiskafli í maímánuði jókst um 46% miðað við maí í fyrra. Þar vegur mest mikil aukning á veiddum kolmunna og nokkur aukning í þorskveiði. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands .

Ef borin eru saman 12 mánaða tímabil hefur orðið 23% aflasamdráttur frá júní 2013 fram til maí 2014 miðað við sama tímabil árið áður. Á föstu verðlagi varð um 9,5% samdráttur í maímánuði árið 2014 samanborið við maí 2013. Á fyrrgreindu 12 mánaða tímabili hefur magnvísitala á föstu verðlagi minnkað um 4,5% miðað við árið áður.