Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 9 milljörðum í júní. Það er ríflega 2 milljörðum minna en á sama tíma í fyrra. Á heildina litið var samdráttur í öllum tegundum nema ufsa og humar. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands .

Aflaverðmæti botnfisk nam rúmum 7 milljörðum í júní og dróst saman um 14,5 frá fyrra ári. Verðmæti flatfiskafla voru rúmir 1,2% sem er 6,1% lækkun frá fyrra ári.

Síðustu tólf mánuðir

Á síðustu tólf mánuðum, eða frá júlí 2015 til júní 2016 nam samanlagt aflaverðmæti 140 milljarðar sem er 8,3% samdráttur miðað við sama tímabil ári fyrr. Á þessu tímabili hefur verðmæti botnfiskafla aukist um 0,3% og flatfiskafla um 25,8%. Verðmæti uppsjávarafla hefur hins vegar dregist saman um 36,6%.