Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2016 nam aflaverðmæti íslenskra skipa 133 milljörðum króna samanborið við ríflega 151 milljarð árið 2015. Aflaverðmæti úr sjó hefur því minnkað um rúma 18 milljarða eða sem nemur 12,1% samdrætti á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 6,5 milljörðum samanborið við 8,5 milljarða í desember 2015. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar .

Aflaverðmæti botnfisks nam 92,7 milljörðum á árinu sem er samdráttur um 9,9% frá fyrra ári. Af botnfisktegundum var þorskur sem fyrr verðmætastur en aflaverðmæti þorsks á síðasta ári nam 58 milljörðum króna sem er 4,8% minna en árið 2015. Verðmæti flatfiskafla var 9 milljarðar á síðasta ári sem er 7,9% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla nam 27,8 milljörðum sem er 19,6% minna en árið 2015. Aflaverðmæti síldar jókst um 11% en verðmæti loðnu dróst verulega saman á milli ára, eða um 60,9%. Verðmæti skel- og krabbadýra var tæpir 3,5 milljarðar á síðasta ári sem er 12,9% samdráttur frá árinu 2015.