Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 12,2 milljörðum í febrúar sem er samdráttur um rúm 25% samanborið við febrúar 2015 þegar verðmætið nam 16,3 milljörðum, að því er fram kemur á vef Hagstofunnar.

Samdrátt í aflaverðmæti má rekja til minni uppsjávarafla, en verðmæti uppsjávartegunda nam rúmum 1,4 milljarði í febrúar til samanburðar við tæpa 6 milljarða í febrúar 2015. Verðmæti botnfisks nam rúmum 10,2 milljörðum í febrúar og jókst um 4,2% samanborið við febrúar 2015. Virði flatfiskafla nam 500 milljónum í febrúar síðastliðnum sem er tæplega 23% aukning á milli ára.Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá mars 2015 til febrúar 2016 jókst um 2,3% miðað við sama tímabil ári fyrr. Á því tímabili jókst aflaverðmæti botnsfisks um 10,4%, flatfisks um 46,9% en verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 25,6%.