Fiskiafli íslenskra skipa í janúar 2017 var 7.610 tonn. Verkfall sjómanna sem nú hefur staðið yfir í tvo mánuði, gerir það að verkum að aflinn er 90% minni en í janúar 2016. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands .

Smábátar með aflamark og krókaaflamarksbátar með 94% aflans í janúar. Á síðastliðnum frá febrúar 2016 til janúar 2017 hefur heildarafli dregist saman um 295 þúsund tonn eða 23% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.