Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem situr í samráðshópi um afnám hafta, telur að gefa þurfi meiri gaum að áhrifum afnáms hafta á vaxtastigið. Hvergi hafi verið minnst á það í gögnum um málið. Morgunblaðið greinir frá.

Mat tveggja hagfræðinga er að það gæti komið til vaxtahækkana en Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, telur núverandi vaxtamun við útlönd nægja til að hefja afnám hafta. „Það liggur hins vegar fyrir að ef eitthvað fer úrskeiðis, og krónan byrjar að falla, þarf Seðlabankinn að bregðast við með því að hækka vexti,“ segir Ásgeir við Morgunblaðið.