Á vef Síldarvinnslunnar í Neskaupstað segir frá því að áframhald er á góðri kolmunnaveiði í færeysku lögsögunni og þessa dagana er samfelld vinnsla í fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði.

Í Neskaupstað var lokið við að landa fullfermi úr Berki NK í fyrrinótt og verið er að ljúka við að landa 1.700 tonnum úr Hákoni EA á Seyðisfirði. Vilhelm Þorsteinsson EA var á föstudag á landleið til Neskaupstaðar með 2.100 tonn.

Skipin hafa verið að fá allt upp í 600 - 650 tonna hol þegar best lætur og veður hefur að mestu verið gott frá því að veiðar hófust.