Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að meginvextir bankans verði óbreyttir áfram, það er vextir á sjö daga bundnum innlánum verða því 4,25% áfram. Næst kemur peningastefnunefnd saman 7. febrúar næstkomandi, en þá verður jafnframt gefin út nýtt rit peningamála með uppfærðri þjóðhagsspá.
Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um spáði Landsbankinn 0,25% lækkun stýrivaxta, en hinir viðskiptabankarnir, Íslandsbanki og Arion banki spáðu óbreyttum vöxtum.
Yfirlýsing Seðlabankans þessa efnis birtist á vefsíðu bankans rétt í þessu:
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,25%.
Samkvæmt nýlega birtum þjóðhagsreikningum var hagvöxtur 4,3% á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er meiri vöxtur en fyrri tölur höfðu gefið til kynna. Því eru horfur á að hagvöxtur verði meiri á árinu öllu en spáð var í nóvemberhefti Peningamála. Áfram hægir á vexti útflutnings en innlend eftirspurn eykst hraðar en spáð hafði verið. Skýrist það m.a. af meiri slaka í opinberum fjármálum á yfirstandandi ári en áður var talið.
Verðbólga var 1,7% í nóvember og hefur hún verið á bilinu 1½-2% um nokkurt skeið. Áfram hefur dregið úr verðhækkunum á húsnæðismarkaði. Að öðru óbreyttu stuðlar það að minni verðbólgu en á móti fjara áhrif hærra gengis krónunnar út. Gjaldeyrismarkaðurinn hefur verið í góðu jafnvægi frá síðasta fundi peningastefnunefndar og hefur gengi krónunnar lítið breyst. Verðbólguvæntingar eru áfram í samræmi við verðbólgumarkmiðið og raunvextir bankans hafa lítið breyst undanfarna mánuði.
Horfur eru á að spenna í þjóðarbúskapnum verði áfram umtalsverð. Það kallar á peningalegt aðhald og meira en ella, slakni á aðhaldi í ríkisfjármálum á næsta ári miðað við það sem gert var ráð fyrir í nóvember. Peningastefnan mun á komandi misserum ráðast af framvindu efnahagsmála, þ.m.t. stefnunni í opinberum fjármálum og niðurstöðu kjarasamninga.
Vextir verða því sem hér segir:
- Daglán: 6,00%
- Lán gegn veði í verðbréfum: 5,00%
- Innlán bundin í 7 daga: 4,25%
- Viðskiptareikningar: 4,00%
- Bindiskyldar innstæður: 4,00%
Vaxtaákvörðunardagar næsta árs verða sem hér segir:
- 7. febrúar
- 14. mars
- 16. maí
- 13. júní
- 29. ágúst
- 3. október
- 7. nóvember
- 12. desember