Isavia býður sérstakan afslátt á vannýttum tímum á Keflavíkurflugvelli til þess að nýta innviði flugvallarins betur með dreifðu álagi. Helstu álagstímarnir á flugvellinum er á m illi sex til níu á morgnanna, sem og um eftirmiðdaginn. Þetta kemur fram í frétt Túrista um málið.

Hins vegar er frekar tómlegt í flugstöðinni frá tíu á og fram yfir hádegi og aftur í kringum kvöldmat og fram til klukkan tíu. Af þeim sökum býðst nú þeim flugfélögum sem bóka brottfarir á þessum dagspörtum 5 evru afsláttur á farþegagjaldi Keflavíkurflugvallar.

Að sögn Guðna Sigurðssonar talsmanns Isavia hafa flugfélögin sýnt afslættinum mikinn áhuga og séu nú þegar farin að nýta sér hann.