Ágúst Elvar Bjarnason hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri ferðamála á Höfuðborgarstofu. Um er að ræða nýtt starf á stofnuninni og felst það í að efla samkeppnisstöðu og fjölbreytileika Reykjavíkur sem áfangastaðar, leiða vinnu við stefnumarkandi stjórnunaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið (DMP) og taka þátt í að fylgja eftir framkvæmd aðgerðaáætlunar Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar.

Verkefnastjóri ber ábyrgð á að bæta upplýsingaöflun um stöðu og þróun ferðamála í Reykjavík, framkvæma vandaðar greiningar og efla samstarf og samráð við lykilaðila innan og utan Reykjavíkurborgar að því er kemur fram í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu.

Ágúst Elvar er með BSc í tölvunarfræði og MA í ferðamálafræði frá háskólanum í Álaborg. Hann hefur áralanga starfs- og stjórnunarreynslu á sviði ferðamála.

Ágúst var eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic DK í Kaupmannahöfn, svæðisstjóri Hadler DMC í sömu borg og sölustjóri hjá Arctic Adventures. Stór hluti af starfi hans hjá Artic Adventures í Reykjavík var greiningarvinna, verkefnastjórnun, ferlagerð, stefnumörkun og samskipti við aðila í ferðaþjónustu innanlands og erlendis.

Alls bárust 19 umsóknir um starfið. Tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar síðar til baka.