Stjórn Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, hefur ákveðið að ráða Aino Freyju Jarvela sem forstöðumann Salarins. Hún hefur störf nú í janúar.

Í tilkynningu um ráðninguna segir að starfið hafi verið auglýst til umsóknar þann 3. september síðastliðinn. Alls bárust 54 umsóknir en þrír drógu umsóknir sínar til baka.

„Aino Freyja tekur við starfinu af Elísabetu Sveinsdóttur sem gegnt hefur starfi forstöðumanns Salarins í rúmt ár.

Aino Freyja er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA-gráðu í leiklist frá Bretlandi og próf í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands.

Hún hefur verið sjálfstætt starfandi framkvæmdastjóri við ýmsa menningarviðburði og séð um kynningarmál þeirra. Hún var um árabil framkvæmdastjóri Dansleikhúss með ekka og var einn af stofnendum þess. Þá var hún formaður sjálfstæðu leikhúsanna (SL) í nokkur ár.

Hlutverk hennar hjá Salnum verður m.a. að sjá um rekstur hans og bera ábyrgð á kynningar- og markaðsmálum.

Salurinn er fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins og stendur á Borgarholtinu í nágrenni Kópavogskirkju. Markmið Salarins er að efla menningu og listalíf á Íslandi.

Salurinn var formlega tekinn í notkun 1. janúar 1999 og var aðsóknarmet slegið í ár en aukningin var ríflega 40 % milli ára,“ segir í tilkynningu.