Airport Associates hefur afturkallað uppsagnir 156 starfsmanna af þeim 237 sem sagt var upp í lok nóvember á síðasta ári.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem veitir flugafgreiðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli, segir að gripið hafi verið til þeirra ráðstafana að segja upp starfsmönnum í ljósi óvissu um flugáætlanir hjá flugfélögum sem fljúga til Keflavíkurflugvallar.

Nú liggi flugáætlanir fyrir og þar af leiðandi sé hægt að afturkalla verulegan hluta af þeim uppsögnum sem voru í gildi í samræmi við þær áætlanir.

Airport Associates þjónustar um 20 flugfélög á Keflavíkurflugvelli en á meðal þeirra eru WOW air, easyJet, Wizz air, Delta Airlines, Bluebird Nordic, Norwegian, American Airlines og Air Canada. Síðastliðið sumar voru störfuðu 700 manns hjá félaginu en fjöldinn verður um 500 næsta sumar.