„Utanríkisráðuneytið áréttar að ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur er ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands og er heldur ekki til marks um tengsl Íslands og Ísraels." Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti , vegna ákvörðunar borgarstjórnar Reykjavíkurborgar um að fela skrifstofu borgarstjóra og innkaupadeild borgarinnar að útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum.

„Utanríkisráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands erlendis og Íslandsstofu hefur af þessu tilefni borist verulegur fjöldi fyrirspurna um afstöðu stjórnvalda til samþykktar borgarstjórnar. Þá hafa ferðaþjónustuaðilar lýst yfir áhyggjum sínum vegna málsins og þegar hefur orðið vart við afpantanir ferða," segir í tilkynningu ráðuneytisins. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði fyrr í dag að íslenskir viðskiptahagsmunir hefðu skaðast vegna ákvörðunarinnar.

Minna borgarstjórn á landslög

Í tilkynningunni er borgarstjórn Reykjavíkurborgar minnt á að hún sé bundin af lögum. „Í því felst að Reykjavíkurborg verður að haga stjórnsýslu sinni í samræmi lög og að ákvarðanir hennar mega ekki fara í bága við þau, þ. á m. lög um opinber innkaup, þar sem óheimilt er að mismuna fyrirtækjum á grundvelli þjóðernis eða af öðrum sambærilegum ástæðum."

Þá segir að ef Reykjavíkurborg samþykki með bindandi hætti að breyta innkaupastefnu sinni þannig að ísraelskir birgjar verði sniðgengnir, „samræmist það hvorki íslenskum lögum né ákvæðum í alþjóðlegum skuldbindingum alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup, sem Ísland er aðili að og Reykjavíkurborg og önnur sveitafélög eru bundin af."

Eins og kom fram í viðtali mbl.is við Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, skipti máli varðandi ákvörðunina að Björk Vilhelmsdóttir var á sínum síðasta borgarstjórnarfundi þegar ákvörðunin var tekin.