Alcoa Inc. hefur nú bæst í hóp aðal samstarfsaðila um djúpborunarverkefnið (IDDP) , sem fram til þessa hafa verið Hitaveita Suðurnesja hf, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Orkustofnun (fyrir hönd ríkisins).

IDDP boðar til fréttamannafundar kl. 14:00 á morgun, þann 11. september 2007. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, á 8 hæð.


Þar er ætlunin að kynna stöðu og áætlanir um djúpboranir á Íslandi. Fyrir skömmu undirrituðu framangreindir aðilar nýjan samstarfssamning um djúpborunarverkefnið.