1.961 einstaklingar komu nýir inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2018 sem er aukning um 5.8% á milli ára og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. 1.367 einstaklingar luku starfsendurhæfingarþjónustu frá VIRK árið 2018 sem er met í útskrifuðum einstaklingum.

2.260 voru í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK um áramótin og höfðu þá alls 14.663 leitað til VIRK frá því að fyrsti einstaklingurinn hóf starfsendurhæfingu á vegum starfsendurhæfingarsjóðsins haustið 2009.

Í heildina hafa 8.716 einstaklingar lokið þjónustu, útskrifast, frá VIRK frá upphafi og tæplega 80% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Sagt er frá þessu á vef VIRK starfsendurhæfingar, þar sem einnig er vísað í niðurstöðu athugunar Talnakönnunar sem segir að ávinningurinn af starfseminni á árinu 2017 hafi numið um 14,1 milljarð króna. Þannig sé reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK 12,6 milljónir króna.