Tölur benda til þess að árið 2016 hafi verið metár í ferðaþjónustunni. Á árinu 2016 komu hátt í 1,8 milljónir ferðamanna til landsins. Það er 40% fjölgun frá árinu áður. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins .

Í síðasta mánuði fóru 125 þúsund erlendir ferðamenn um Leifsstöð, sem er 54 þúsundum fleiri en sama mánuði árið áður. Það er 76% aukning milli ára. Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferðamanna sexfaldast.

Metár 2017 í komu skemmtiferðaskipa

Talsvert af ferðamönnum kom einnig með skemmtiferðaskipum. Á árinu sem er nýliðið komu 114 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur - með um 99 þúsund farþega. Árið 2017 stefnir allt í að nýtt met verði slegið í komu skemmtiferðaskipa, en 134 skipakomur hafa verið bókaðar í Reykjavík og 128 þúsund farþegar verða þar um borð.