Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, hefur birt færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún ræðir um brottkast og vigtunarmál. Tilefnið er umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks og fundir með sérfræðingum og hagsmunaaðilum sem hún hefur átt síðustu daga.

Texti færslunnar fer hér á eftir – Þorgerður segir brottkast staðreynd, þó úr því hafi dregið. Vigtunarmál þurfi að taka til endurskoðunar. Rætt var um strangari viðurlög og auknar heimildir Fiskistofu. Starfsöryggi sjómanna, og fleira.

„Á miðvikudaginn ræddi ég við hlutaðeigandi ráðuneytisstarfsmenn og forstjóra Hafró og Fiskistofu. Niðurstaðan af þeim fundi var sú að allar rannsóknir bendi til þess að mjög hafi dregið úr brottkasti á umliðnum árum en að vigtunarmálin þarfnist sannarlega endurskoðunar. Á fimmtudaginn fundaði ég síðan með SFS og forystumönnum sjómanna ásamt því að ræða við Landssamband Smábátasjómanna. Niðurstaðan af þeim samtölum var á svipaða leið hvað varðar brottkastið, allir gangast við því að brottkast eigi sér stað en það sé í mjög litlum mæli miðað við fyrri tíð.

Hvað vigtunarmálin varðar greindi hinsvegar hagsmunaaðilunum talsvert á um hvaða leið sé best og sanngjarnast að fara. Allir voru sammála um að mikilvægast sé að tryggja gæði aflans með réttri kælingu miðað við aðstæður en ljóst er að talsverðar tortryggni gæti á meðal sjómanna um vigtunarmálin, ekki síst þegar um ræðir endurvigtunina.

Nokkrar lausnir voru ræddar, t.d. strangari viðurlög og auknar heimildir Fiskistofu, auk þess sem starfsöryggi sjómanna sem vilja tilkynna um brot bar á góma. Ráðuneytið mun nú skoða þess mál nánar í samstarfi við okkar undirstofnanir. Mestu máli skiptir þó að útgerðin axli ábyrgð á málum sem þessum og umgangist sameiginlega auðlind þjóðarinnar af ábyrgð og virðingu. Það er krafa uppi í samfélaginu um að þessi mál séu tekin föstum tökum og umræðan má aldrei beinast að að sendiboðunum heldur sökudólgunum sjálfum. Þeir eru blessunarlega lítill hluti kerfisins en eins og annars staðar þá skemma svörtu sauðirnir fyrir heildinni og í þeim efnum er ímynd landsins sem ábyrg fiskveiðiþjóð undir.“