Nýtt fyrirtæki, Krít fjármögnunarlausnir ehf., hefur hafið starfsemi og hefur Almar Guðmundsson, hagfræðingur og MBA, verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og mun hann stýra uppbyggingu þess. Stjórnarformaður er Kjartan Georg Gunnarsson.

Félagið sérhæfir sig í fjármögnun á vörum í innflutningi fyrst um sinn en mun útvíkka starfsemina síðar, en félagið er fjármagnað af sjóði sem rekinn er af GAMMA Capital Management. Krít rekur þjónustu sína í samstarfi við Eimskip og fjármagnar kaup á vörum sem viðskiptavinir Eimskips flytja og/eða hýsa í vörugeymslum félagsins.

Krít býður nýjung á íslenskum markaði þar sem tæknileg lausn tvinnar saman fjármögnun og flutning á þægilegan og einfaldan máta fyrir inn- og útflutningsfyrirtæki. Félagið er nýr valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa einfalda og þægilega birgðafjármögnun segir í fréttatilkynningu.

Gylfi Sigfússon , forstjóri Eimskips segir: „Þessi þjónustan er frábær nýjung fyrir viðskiptavini okkar og kemur til með að auka enn á möguleika í inn- og útflutningi.“

„Það er ánægjulegt að sjóðir sem reknir eru af okkur taki þátt í því að fjölga fjármögnunarkostum fyrir fyrirtæki á Íslandi,“ segir Gísli Hauksson , stjórnarformaður GAMMA. „Við erum sannfærð um að sérsniðnar lausnir verði til hagræðis fyrir fyrirtækin og fjölgi valkostum við fjármögnun.“

Almar Guðmundsson , framkvæmdastjóri Krítar segir tæknilegar lausnir vera að breyta fjármálaumhverfinu. „Okkar lausn er dæmi um það hvernig hægt er að klæðskerasníða fjármögnun að mikilvægum ferlum í rekstri fyrirtækja,“ segir Almar. „Við sjáum fyrir okkur frekari sóknarfæri á þessu sviði.“