Líftæknifyrirtækið Alvotech gaf nýverið út skuldabréf fyrir 300 milljónir dollara eða jafnvirði ríflega 36 milljarða króna. Eigendur skuldabréfanna munu jafnframt geta breytt bréfunum í hlutabréf samhliða skráningu Alvotech á hlutabréfamarkað.

CSLA sá um útgáfu bréfsins og alþjóðlegi fjárfestingarbankinn Morgan Stanley var lykilfjárfestir. Arctica Finance var ráðgjafi Alvotech.