Samkvæmt heimildum Bloomberg fréttaveitunnar, hefur Amazon Inc. hafið prófanir á drónaflugi í Bretlandi. Prófanirnar munu fara fram í samvinnu við breska flugumferðareftirlitið.

Amazon vil fjölga valmöguleikum fyrir viðskiptavini sína. Félagið telur sig jafnvel vera of háð fyrirtækjum á borð við UPS og FedEx. Drónatæknin á að opna möguleika á skilvirkari og fljótari flutningum. Til þess að þetta geti orðið að raunhæfum möguleika í framtíðinni, er þó mikilvægt að vinna náið með yfirvöldum.