bókabúð Amazon í Seattle er byggð úr múrsteinum, timbri, nöglum og steypu, og viðskiptavinir geta gengið inn í hana og handlangað bækurnar sem þeir ætla að kaupa.

Verslunin er staðsett í verslunarmiðstöð nálægt Washington-háskóla, á jaðri stórháskólasvæðisins. Þessi fyrsta bókabúð netverslunarrisans er í smærri kantinum miðað við aðrað stórar bókabúðir í Bandaríkjunum. Hún er aðeins 510 fermetrar, en meðalstór Barnes & Noble búð er eitthvað um fimm sinnum stærri.

Harðviðarparket þekur gólf verslunarinnar og bókahillurnar eru einnig gerðar úr timbri. Allar bækurnar sem eru til sölu eru handvaldar fyrir að vera með háa einkunn í netverslunum Amazon, og hver og ein þeirra er með samandregna gagnrýni eða bókadóm tekna af Amazon-síðu bókarinnar.