Andrés Arnarson hefur verið ráðinn forstöðumaður sölusviðs Greenqloud fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Andrés hefur unnið í tæknigeiranum í tvo áratugi, þar af s.l. fimm ár sem sölustjóri lausnasölu hjá Advania á Íslandi.

Fram kemur í tilkynningunni að Andrés hafi mikla alþjóðlega sölureynslu og hafi haldið úti viðskiptatengslum við fyrirtæki eins og Dell, EMC, Microsoft, VMware, Cicso og HP.

Þá hafi hann tekið þátt í verkefnum á sviði alþjóðlegra gagnavera á Íslandi.