Andri Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins í stað Fanneyjar Birnu Jónsdóttur sem gengt hafði starfinu í um ár. Sést þetta á starfsmannalista blaðsins.

Andri var áður fréttastjóri á Fréttablaðinu en hefur frá því á síðasta ári verið ritstjóri Íslands í dag, en sá þáttur sem hefur verið á dagskrá stöðvar 2 í áratugi hefur verið lagður niður.