Api getur ekki átt höfundarrétt að ljósmyndum samkvæmt úrskurði alríkisdómstóli í Bandaríkjunum en dómurinn var kveðinn upp á mánudaginn að því er The Wall Street Journal greinir frá .

Málinu var skotið til dómstóla af dýraverndunarsamtökunum People for the Ethical Treatment of Animals (PETA) árið 2015 en þeim þótti ekki rétt að dýralífsljósmyndari skyldi eiga höfundarréttinn að sjálfum (e. selfies) sem voru teknar fjórum árum áður af indónesíska apanaum Naruto.

PETA töldu að apinn, Naruto, ætti sjálfur höfundarréttinn að myndunum sem sýna apann brosandi framan í myndavélina. Í úrskurði dómsins sagði hins vegar að dýr hefðu enga lagalega getu til þess að fara með höfundarrétt.

Peta höfðu áður reynd að lögsækja ljósmyndarann, David Slater, sem aðstandendur apans en það hafði ekki gengið.

Í umfjöllun WSJ kemur fram að apinn hafi tekið myndirnar eftir að hann fann myndavél Slaters á friðlýstu eyjunni Sulawesi sem tilheyrir Indónesíu.