Áætlað er að bandaríska tæknifyrirtækið Apple hafi flutt út fleiri úr heldur en svissneskir úraframleiðendur til samans á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkt gerist. Statista greinir frá .

Apple framleiðir Apple-snjallúr (Apple Watch) sem sýna ekki eingöngu tíma dagsins, heldur eru úrin einnig með innbyggð GPS kerfi. Þessi kerfi mæla hraða, skref, vegalengd og staðsetningu. Úrin eru einnig framlenging á upplýsingum úr iPhone-símum og gera fólki kleift að svara símtölum og hringja, ásamt því að fá skilaboð og tilkynningar í úrið. Í Sviss eru framleidd sum af þekktustu og vönduðustu úrum heims á borð við Rolex, Cimier, Omega og Swatch.

Talið er að Apple hafi flutt 8 milljón Apple-úr milli október og desember á síðasta ári. Á hinn bóginn voru flutt út 6,8 milljón úr frá Sviss á sama tímabili. Alls flutti Apple út 18 milljón úr á síðasta ári, en flutt voru út 24,2 milljón úr frá Sviss. Apple-úrið er í dag vinsælasta úr í heimi .