Gengi hlutabréfa bandaríska tæknifyrirtækisins Apple endaði í 100,53 dölum á hlut við lokun markaða í gær. Þetta er sögulegt skref en gengið hefur aldrei verið hærra í kjölfar skiptingar hlutabréfanna. Erlendir fjármálaspekúlantar segja ástæðuna mikla spennu í aðdraganda þess að næsti iPhone-sími Apple fer á markað. Búið er að boða til kynningar á símanum í september. Þá bíða aðrir spenntir eftir því að snjallúr Apple líti dagsins ljós.

Gengi hlutabréfa Apple hefur verið á mikilli siglingu síðastliðin ár. Fjallað er ítarlega um Apple í netútgáfu Irish Times . Þar er m.a. rifjað upp að síðan fyrsti iPhone-síminn leit dagsins ljós hefur það hækkað um 700%. Frá áramótunum síðustu hefur það svo hækkað um 25%.