Apple hefur gefið frá sér tilkynningu um að útskiptiferli sé farið af stað á litlu klónni sem hefur fylgt mörgum raftækjum frá fyrirtækinu á árunum 2003-2015.
Allar klær í útskiptingarferlinu eru merktar með 4- eða 5-stafa runum, til dæmis ‘4913’, inni í raufinni. Þá eru klær merktar EUR nýlegri í framleiðslu og eru ekki hluti af útskiptingunni.
Hægt er að skipta út klónum í verslunum Eplis á Laugavegi eða í Smáralind. Smella má hér til að fara á vefsíðu fyrirtækisins.