Applicon, dótturfélag Nýherja, selur og innleiðir bankakerfi fyrir SBAB Bank í Svíþjóð.  Í dag var skrifað undir samning þess efnis að Applicon myndi sjá um sölu og innleiðingu á kjarnabankakerfum fyrir SBAB Bank AB þar í landi. Stærð efnhagsreiknings SBAB um síðustu áramót var tæplega tvöfalt hærri en samanlagðar eignir íslensku viðskiptabankanna þriggja.

„SBAB Bank AB er sænskur banki sem sérhæfir sig í lánveitingum og sparnaðarlausnum til einstaklinga, fasteignafyrirtækja og húsnæðissamtaka. Hjá bankanum starfa um 450 manns í Stokkhólmi, Gautaborg, Karlstad og Malmö. Bankinn er í eigu sænska ríkisins og er með um SEK 303 milljarða í útlán en um SEK 80 milljarða í innlánum. Fjöldi útlána er um 350.000. Moodys gefur bankanum Aaa í langtímaeinkum“ segir í fréttatilkynningu frá Nýherja.

Þar kemur einnig fram að: „SBAB mun innleiða kjarnabankakerfi frá SAP AG ásamt tengdum viðbótarlausnum frá Applicon.  Applicon selur kerfin og sér um innleiðinguna, auk þess að sjá um tengingar við önnur kerfi bankans og við sænska greiðslumiðlun. Innleiðingarferlið er áætlað allt að 3 ár og mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og rekstrarniðurstöðu Nýherjasamstæðunnar næstu misseri.  Samningurinn mun enn fremur skjóta styrkum stoðum undir þann rekstur sem Applicon félögin hafa byggt upp síðustu ár sem leiðandi í innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á alþjóðlegum kjarnabankalausnum.  Að lokinni  innleiðingu mun Applicon AB sjá um hugbúnaðarrekstur á kerfunum fyrir SBAB og sér þá um rekstur kjarnabankakerfi fyrir tvo af tíu stærstu bönkum Svíþjóðar, SBAB Bank og Landshypotek Bank.“

Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, telur það mikla viðurkenningu að SBAB taki þetta skref með þeim og að það endurspegli jafnframt trú markaðarins á þekkingu og lausnum Applicon.