Barnaþátturinn Stundin okkar skaut föstum skotum að forsætis- og fjármálaráðherra í hinu svokallaða „Stundarskaupi” sínu í gærkvöldi.

Þá hófst þáttur Ríkisútvarpsins á stælingu á hinni sígildu Stjörnustríðsopnun, þar sem talað var um hvernig átök hafa brotist út innan „velmegunarríkisins”. Þáttinn sjálfan má sjá með því að smella hér.

Fljúga einkavæðaranum stjórnlaust um alheiminn

Í opnunartextanum segir meðal annars:

Uppreisnarmenn og konur hafa hreiðrað um sig í mikilvægum grunnstoðum mannlífsins og heimta það eitt að fá að lifa eðlilegu lífi fyrir sig og fjölskyldur sínar.

Skjótandi í myrkrinu ferðast æðstu yfirmenn hins nýstofnaða velmegunarríkis stjórnlaust um óravíddir alheimsins á hinu endurnýjaða, ógnarstóra og misskilda flotaskipi, „einkavæðaranum”.

Þá eru forsætis- og fjármálaráðherra báðir sýndir sem persónur í Stundarskaupinu. Skyrta Bjarna Benediktssonar er merkt sem ‘Aðmíráll Icehot1’, en auk þess er Sigmundur Davíð í hlutverki grænu snigilslegu geimverunnar Jabba the Hutt.

Landspítalanum og RÚV tortímt

„Þessir læknar og hjúkrunarfólk, þau eru sívælandi! Aldrei ánægð með neitt!” segir Bjarni í þættinum, milli þess sem hann og Sigmundur Davíð hlæja illkvittnislega. „Það er svo gaman, það er svo gaman að rústa!”

Í næsta skoti er svo sýnt brot úr upprunalega Stjörnustríðsþríleiknum þar sem eyðileggingargeisla Helstirnisins (e. Death Star) er skotið af stað.

Því næst sést svo hvernig hann tortímir Landspítalanum. Í atriðinu sem á eftir kemur gereyðir geimskip Bjarna og Sigmundar svo húsnæði Ríkisútvarpsins í Efstaleiti.

Stjórnarandstaða fær einnig skerf

Þó er ekki aðeins skotið á embættismenn ríkisstjórnarinnar. Í öðru atriði kallar þáttarpersóna eftir því að Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar vilji fá brúnkukrem sitt aftur.

Auk þess minnist sama persóna á að Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata hafi gleymt sjampóinu sínu innan leikmyndar þáttarins fyrir mörgum árum síðan.

Þættinum er leikstýrt af Braga Þór Hinrikssyni en Stundin okkar er í umsjón Guðjóns Daníels Karlssonar, sem gengur oftar en ekki undir listamannsnefninu Gói. Að handritsgert við þáttinn koma Bragi og Guðjón auk Sverris Þórs Sverrissonar, sem er betur þekktur sem Sveppi.