Ari Edwald, forstjóri afþreyinga- og fjölmiðlafyrirtækisins 365, hefur keypt í félaginu fyrir 39,2 milljónir króna.

Kaupin eru ekki tengd starfskjörum hans, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar, né heldur kaup- eða sölurétti í félaginu. Aftur á móti er 365 söluaðili bréfanna.

Kaupgengið er 2,45 krónur á hlut og um er að ræða 16.000.000 hluti.

Eftir viðskiptin á hann 23.800.000 hluti eða um 58,3 milljónir króna, miðað við kaupgengi viðskiptanna.