Fimmtudaginn 6. desember kl. 9.00 opnar Arion banki afgreiðslu við Hagatorg eftir gagngerar endurbætur á húsnæði bankans. Afgreiðslan í Vesturbænum verður með svipuðu sniði og í Kringlunni og Garðabæ þar sem áhersla er lögð á þægilega og góða þjónustu sem og aðstoð og kennslu í stafrænum þjónustuleiðum bankans.

Flest öll hefðbundin bankaþjónusta verður aðgengileg við Hagatorg. Sem dæmi verður hægt að millifæra, greiða reikninga, leggja inn og taka út íslenskar krónur í hraðbönkunum. Með hjálp fjarfundarbúnaðar verður boðið upp á víðtækari þjónustu og fjármálaráðgjöf. Starfsfólk verður á staðnum frá 9-17 alla virka daga og hraðbankar verða opnir allan sólarhringinn.

Í tilefni opnunarinnar þann 6. desember verður boðið upp á rjúkandi kaffi og sæta bita frá kl. 9.00-17.00 og öll börn fá endurskinsmerki frá Sparilandi.