Ármann Þorvaldsson tekur við Kviku banka þann 15. júní næstkomandi. Þar til verður Magnús Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kviku verður staðgengill forstjóra. Þetta er staðfest í fréttatilkynningu frá Kviku banka.

Jafnframt hefur verið staðfest að Marinó Örn Tryggvason hafi verið ráðinn aðstoðarforstjóri bankans. Marinó hefur starfað hjá eignastýringu Arion banka og forvera bankans frá árinu 2002, síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar frá 2014. Marinó sat í stjórn Varðar Trygginga frá 2016 til 2017. Marinó er með BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og er með próf í verðbréfaviðskiptum. Marinó hefur störf 1. ágúst.

Ármann Þorvaldsson hefur starfað hjá Virðingu frá árinu 2015, síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar. Áður var hann framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings frá 1997 til 2005 og framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi frá 2005 til ársins 2008. Áður en Ármann hóf störf hjá Virðingu starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá fasteignalánafélaginu Ortus Secured Finance í London. Ármann útskrifaðist með MBA gráðu frá Boston University árið 1994 og er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.