Arna Þorsteinsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Silent og tekur hún við starfinu af Davíð Lúther Sigurðarsyni, eiganda Silent, sem tekur á sama tíma við starfi markaðsstjóra fyrirtækisins. Arna hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Silent síðastliðin tvö ár og er 28 ára lögfræðingur.

“Ég hef leitt þetta fyrirtæki frá stofnun þess og finnst tími til kominn að rétta öðrum aðila keflið. Arna hefur staðið sig frábærlega í starfi og hefur myndað sterk tengsl við viðskiptavini okkar. Ég fer þó ekki langt og mun sinna öðrum málum innan fyrirtækisins,” segir Davíð.

Silent er framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í að útbúa kynningarmyndbönd og auglýsingar fyrir fyrirtæki. Hjá Silent starfa 10 manns í föstu stöðugildi.