Árni Páll Árnason, sitjandi formaður Samfylkingarinnar, mun ekki bjóða sig aftur fram til embættis formanns flokksins á næsta landsfundi. Þetta kemur fram í pósti sem hann sendi til meðlima Samfylkingarinnar fyrir skömmu síðan.
Í bréfinu segir Árni Páll að flokkurinn sé í sárum og að atburðarás síðasta landsfundar hafi vakið hjá honum efasemdir um að eining gæti skapast innan flokksins, sæti hann í fararbroddi. Hans biði því erfið barátta um formannssætið sem enginn vissi hverju myndi skila.
„Þjóðin á skilið að eiga öflugan jafnaðarflokk, sem styður þann formann sem flokksmenn velja til forystu í allsherjaratkvæðagreiðslu,” segir Árni í bréfi sínu. „Ég mun gera mitt til að svo verði. Vonandi birtist sá flokkur þjóðinni 4. júní næstkomandi og sýnir sig tilbúinn til verka.”
Eftir í framboði til formanns flokksins eru þá Oddný Harðardóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar.