Reykjavíkurborg hefur gengið frá úthlutun lóða til Bjargs íbúðafélags, stofnendur þess eru ASÍ og BSRB. Félaginu er áætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Undirritunin fór fram að Móavegi í Grafarvogi en þar er gert ráð fyrir 120 íbúðum.

Úthlutun byggingarréttar er á þremur stöðum í borginni:

  • Í Spönginni í Grafarvogi við Móaveg 2 – 4, en í nýju skipulagi Spangarinnar er gert ráð fyrir 120 íbúðum í sjö sjálfstæðum eins til fjögurra  hæða byggingum sem raðast kringum miðlægan garð.
  • Í Úlfarsárdal við Urðarbrunn 33 – 35 og 130 – 134.  Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir 53 íbúðum í tveimur sjálfstæðum byggingum.
  • Á Kirkjusandi við Hallgerðargötu er gert ráð fyrir 63 íbúðum á lóðum G og  H.

„Íbúðir Bjargs verða svokölluð leiguheimili og byggja á nýjum húsnæðislögum um almennar íbúðir og verða leigðar út til fólks með lágar- og meðaltekjur. Að sögn Björns Traustasonar framkvæmdastjóra Bjargs verður lögð áhersla á hagkvæmni í byggingu, rekstri, endingu og góða nýtingu á rýmum, án þess að það verði á kostnað gæða,“ segir í tilkynningunni.