Ásmundur Sævarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Íslandshótela.

Ásmundur útskrifaðist með BS próf í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði frá Coastal Carolina University árið 1998. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnun og framkvæmd markaðsmála. Ásmundur hefur frá árinu 2008 starfað hjá Primera Travel Group, fyrst sem vef markaðsstjóri og síðar sem yfirmaður vefþróunar og stafrænnar markaðssetningar. Á árunum 2004 til 2008 starfaði hann sem sérfræðingur í markaðsdeild Icelandair og þar áður var hann hann verkefnastjóri hjá Össur hf. og kerfishönnuður hjá Teligent Inc. í Bandaríkjunum.

Eiginkona Ásmundar heitir Björg Stefanía Sigurgeirsdóttir og saman eiga þau þrjá drengi.