Ársfundur Fjármálaeftirlitsins 2018 verður haldinn í dag, í salnum Háteigi klukkan15:00 á fjórðu hæð Grand Hótels í Sigtúni.
Til fundarins er boðið ýmsum samstarfsaðilum Fjármálaeftirlitsins, helstu stjórnendum fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, vátryggingafélaga og fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni auk annarra aðila sem heyra undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.
Fundinn ávarpa Ásta Þórarinsdóttir stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Jón Þór Sturluson sem er er starfandi forstjóri stofnunarinnar að því er segir á vef stofnunarinnar.